Daily contemplation · day 299 of the year

26 October

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Í sjötta lagi get ég sótt AA-fundi, Guði sé lof. Hvar væri ég staddur án þeirra? Hvar annarsstaðar fyndi ég slíka samúð, skilning, samhygð og félagsskap? Hvergi í öllum heiminum. Ég er kominn heim. Ég hef fundið minn samastað. Ég ráfa ekki lengur einmana um víðáttuna. Yfir mér er friður og ró. Mikið hefur AA gefið mér veglega gjöf. Ég verðskulda hana ekki. Samt er hún fallin mér í skaut. Loks er ég kominn heim. Ég er alsæll. Þakka ég Guði daglega fyrir AA-samtökin?

Íhugun dagsins

Stígðu skrefið að fullu með Guði og trúnaðarmanni þínum. Láttu þér ekki nægja hálfkák. Ýttu ekki Guði svo langt til hliðar að hann hafi engin áhrif á líf þitt. Hafðu hann alltaf þér við hlið. Hafðu við hann gott samband með því að biðja til hans oft á dag. Hafðu ekki of stopult samband. Taktu saman höndum með Guði og mönnum á lífsleiðinni, hvert sem þig ber.

Bæn dagsins

Ég bið að ég gangi leiðar minnar í fylgd Guðs. Ég bið ég feti mig stöðugt ofar.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.