Daily contemplation · day 301 of the year

28 October

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Hvað annað hef ég uppskorið vegna minna nýju lífshátta? Hver um sig getur svarað þessari spurningu á ýmsa vegu. Samband mitt við makann er alveg komið á nýtt svið. Hin algjöra sjálfselska er horfin og meiri samvinna er komin í staðinn. Heimili mitt er aftur orðið að heimili. Skilningur er kominn í stað misskilnings, ásakana, nöldurs og gremju. Nýr samhugur hefur myndast, sem lofar góðu um framtíðina. „Heimilin, sem efla andans auð með þjóðum, með bænum, söng og siðum góðum, þau varpa ljósi á heimsins hjarn og hála völlu, og Drottinn vakir yfir öllu“. Er ég kominn heim?

Íhugun dagsins

Við getum beygt okkur fyrir vilja Guðs og búist við því að það gerist sem verði okkur öllum fyrir bestu þegar til lengdar lætur. Það virðist kannske ekki bestur kostur þegar það gerist, en við erum ekki eins framsýn og Guð. Við þekkjum ekki, fyrirætlanir hans, við verðum bara að trúa því að ef við treystum honum og sættum okkur við atburði líðandi stundar sem vilja hans, muni allt fara vel að lokum.

Bæn dagsins

Ég bið að mig fýsi ekki að sjá langt inn í framtíðina. Ég bið að eitt skref nægi mér.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.