No translation yet; the Icelandic original is shown.
AA-hugleiðing dagsins
Samskipti mín við börnin mín hafa batnað stórum. Þessi börn sem sáu mig drukkinn og skömmuðust sín, þessi börn sem sneru sér frá mér í ótta og jafnvel fyrirlitningu, hafa séð mig allsgáðan og þeim líkar vel við mig, þau hafa snúið sér til mín í trúnaði og trausti og þau hafa gleymt fortíðinni eftir bestu getu. Þau hafa gefið mér tækifæri til að njóta félagsskapar, sem ég fór alveg á mis við. Ég er nú faðir þeirra eða móðir. Ég er ekki bara „þessi sem pabbi eða mamma giftust af einhverri óskiljanlegri ástæðu“. Nú er ég hluti af heimilinu. Hef ég fundið eitthvað sem ég hafði glatað?
Íhugun dagsins
Hin sanni árangursmælikvarði í lífinu er mælikvarði okkar andlegu framfara. Aðrir ættu að geta séð vilja Guðs í framkvæmd í lífi okkar. Merkin um vilja Guðs í daglegu lífi okkar, sem okkar nánustu sjá, eru mælikvarðinn á sannar framfarir. Við getum daglega gert okkar besta til að vera lifandi dæmi um mátt Guðs í mannlegu lífi, dæmi um áhrif Guðs náðar í hjörtum karla og kvenna.
Bæn dagsins
Ég bið að ég lifi lífi mínu þannig að aðrir sjái í mér einhver áhrif af vilja Guðs. Ég bið að líf mitt verði lifandi dæmi um það sem náð Guðs megnar.