Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Í sjöunda lagi get ég hjálpað öðrum alkóhólistum. Ég er til einhvers gagns. Líf mitt hefur tilgang. Loksins er ég einhvers virði. Líf mitt hefur fengið markmið og stefnu. Öll fánýtis tilfinning er horfin. Ég get lagt eitthvað af mörkum sem máli skiptir. Guð hefur gefið mér framlengingu á lífinu svo að ég geti hjálpað öðrum alkóhólistum. Hann hefur leyft mér að lifa af allan háska hins alkóhólíska lífernis svo að ég geti að lokum orðið að gagni hér í heimi. Þess vegna hefur hann leyft mér að lifa. Þetta er tækifæri mitt og örlög mín. Ég er einhvers virði. Ætla ég að tileinka AA eins mikið og ég get af lífi mínu?
Íhugun dagsins
Hvert okkar þarf að vinna sigur í eigin baráttu, baráttunni milli efnislegrar og andlegrar lífsskoðunar. Eitthvað verður að vera leiðarstjarna í lífinu. Á það að vera auður, metnaður, eigingirni, ágirnd, eða á það að vera trú, heiðarleiki, hreinlyndi, óeigingirni, kærleikur og þjónusta? Hver og einn á valið. Við getum valið gott eða illt. Við getum ekki valið hvorttveggja. Ætlum við að halda áfram baráttunni uns sigur er unninn? Ef við vinnum stríðið, megum við ganga að því vísu að Guð á himnum muni fagna því.
Bæn dagsins
Ég bið að ég velji, hið góða, og hafni því illa. Ég bið að ég bíði ekki ósigur í baráttunni fyrir réttlæti.