Codzienne rozważanie · 304. dzień roku

31 października

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég á nú meiri frið og fullnægju. Lífið er komið í réttar skorður. Hlutarnir í ráðmyndinni eru komnir á sinn stað. Lífið er heilt og óskert. Vindar kringumstæðna og duttlunga feykja mér ekki lengur út og suður. Ég er ekki lengur eins og skrælnað laufblað sem vindurinn feykir út í buskann. Ég hef fundið mér athvarf, minn eigin stað. Ég er ánægður. Ég óska ekki af handahófi þess sem ég á ekki kost á. Ég á til „æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli“. Hef ég orðið ánægður í AA?

Íhugun dagsins

Öll eigum við innri vitund sem ber Guði vitni, innri rödd, sem talar til hjartans. Hún talar til okkar í einrúmi, hvers og eins, á stund kyrrlátrar íhugunar. Hún er eins og lampi fóta okkar og ljós á vegum okkar. Við getum teygt okkur út í myrkrið og snert hönd Guðs í anda. Í AA-bókinni segir svo: „Djúpt í sál hvers karls, konu og barns býr hugmyndin um Guð í frumgerð sinni. Við fundum hinn mikla raunveruleika djúpt innra með okkur. Og þegar við fundum hann, breyttist afstaða okkar til lífsins“.

Bæn dagsins

Ég bið að ég fylgi leiðsögn innri raddar. Ég bið að ég daufheyrist ekki við rödd samvisku minnar.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.