Codzienne rozważanie · 303. dzień roku

30 października

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég á nú sanna vini, en þá átti ég ekki áður. Varla er hægt að kalla drykkjufélaga mína sanna vini, þótt við virtumst vera bestu félagar þegar við vorum fullir. Hugmyndir mínar um vináttu hafa breyst. Vinir eru ekki lengur þeir sem ég get haft gagn eða gaman af. Nú skilja vinir mínir mig og ég þá, við veitum hverjir öðrum gagnkvæma hjálp til betra lífs. Ég hef lært að sitja ekki og bíða þess átekta að ég eignist vini, heldur geng ég til móts við þá og þeir til móts við mig, frjálslega og í einlægni. Hefur vinátta fengið nýja merkingu fyrir mig?

Íhugun dagsins

Allt bíður síns tíma. Við eigum að læra að bíða rétta augnabliksins þolinmóð. Förum varlega. Við sóum orku okkar í að reyna að eignast hlutina áður en við erum reiðubúin, áður en við höfum áunnið okkur rétt til þeirra. Við þurfum að tileinka okkur þann mikla lærdóm að bíða þolinmóð. Því megum við trúa, að allt okkar líf er undirbúningur að einhverju betra, þegar við höfum áunnið okkur rétt til þess. Við megum trúa því, að Guð hefur ætlun með lífi okkar og að þessi ætlun kemur í ljós í fyllingu tímans.

Bæn dagsins

Ég bið að mér lærist að bíða í þolinmæði. Ég bið að ég vænti einskis fyrr en ég á það skilið.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.