AA-hugleiðing dagsins
Ég trúi, það sættir mig við heiminn. Það hefur mér loksins skilist. Vitund um alheimslögmálið guðdómlega sem öllu heldur í horfinu og gefur því samræmi, tilgang, einlægni og merkingu. Lífið er mér ekki litlaust og beiskjublandið lengur. Það er heil dýrð, því að Guð stýrir því. Trúin er stökkið yfir hið óþekkta, dirfskuferðin út af þekkingarsviði okkar, sem færir okkur ríkulega umbun hugarfriðar og æðruleysis. Trúi ég?
Íhugun dagsins
Vertu eins og tómt ker, handa Guði að fylla. Úthelltu sjálfum þér stöðugt við að hjálpa öðrum, svo að Guð geti endurfyllt þig anda sínum. Því meira sem þú gefur, því meira hlotnast sjálfum þér. Guð mun gæta þess að þú endurnærist jafnóðum og þú miðlar öðrum. En ef þú reynir af eigingirni að sitja að öllu sjálfur rofnar streymið frá Guði, uppsprettu þinni, og þú staðnar. Ef stöðuvatn á að haldast tært, verður að vera innstreymi í það og frárennsli.
Bæn dagsins
Ég bið að ég veiti stöðugt áfram því sem mér gefst. Ég bið að ég haldi læknum tærum og rennandi.