AA-hugleiðing dagsins
Allir eru samsettir úr tveim eiginleikum, góðum og vondum. Við erum öll að einhverju marki tvíþætt að gerð. Þegar við vorum að drykkju ríkti verri hliðin. Við gerðum ýmislegt þegar við vorum drukkin, sem við myndum aldrei gera allsgáð. Þegar af okkur rennur, kemur önnur manngerð í ljós. Þá undrumst við, hvernig við gátum gert það sem við gerðum. En við förum aftur í drykkju og aftur birtist slæma hliðin. Þannig gengur þetta fram og aftur, alltaf í átökum við okkar innri mann, alltaf í basli. Þessi tvískipting er óheppileg; við verðum einhvern veginn að verða heil. Það tekst okkur með því að snúa okkur af hug og hjarta að AA-samtökunum og allsgáðu lífi. Er ég í heilu lagi?
Íhugun dagsins
„Gott, þú góði og trúi þjónn. Gakk inn í fögnuð herra þíns“. Þessi orð eru ætluð mörgum hversdagsmanninum, sem umheimurinn gefur engan gaum. Þau eru ekki töluð til manna, sem eru heimsfrægir, stoltir og auðugir, heldur til kyrrlátu lærisveinanna, sem þjóna Guði af hógværð en þó dyggilega, sem bera sinn kross með hugrekki og brosa til umheimsins. „Gakk inn í fögnuð herra þíns“. Hverf á vit andríkara lífs, sem gagntekið er fögnuði og friði.
Bæn dagsins
Ég bið að ég girnist ekki veraldlega hyllingu. Ég bið að ég leiti ekki umbunar fyrir að gera það sem ég tel vera rétt.