Dagleg hugleiðing · 311. dagur ársins

7. nóvember

AA-hugleiðing dagsins

Mikið af gremju minni er horfið. Ég hef uppgötvað, að það er ekki til neins góðs að hefna sín. Þegar við reynum að hefna okkar, verðum við vonsvikin og leið, í stað þess að líða betur. Við höfum raskað hugarfró okkar í stað þess að refsa óvinum okkar. Það borgar sig ekki að bera kala í brjósti, það særir okkur mest sjálf. Hatur veldur vonbrigðum, sálarflækjum og taugaveiklun. Ef við hötum verðum við andstyggileg. Ef við ölum gremju í brjósti, uppskerum við gremju annarra. Ef okkur þykir ekki vænt um aðra, þykir engum vænt um okkur. Hefnigirni okkar er ægilegt eitur. Hef ég losað mig við gremjuna?

Íhugun dagsins

Það er fremur náð Guðs sem í þér býr, en þú sjálfur sem hjálpar þeim sem eru þér nálægir. Ef þú getur jafnvel hjálpað þeim sem þér fellur ekki við er það ljóst að ekkert í þér sjálfum getur hindrað náð Guðs í að notfæra sér þig. Mestu hindranirnar eru hroki þinn og eigingirni. Hafðu hemil á þeim og náð Guðs mun streyma um farveg þinn inn í líf annarra. Þá mun öllum þeim sem komast í snertingu við þig verða hjálpað með einhverju móti. Gættu þess að farvegurinn sé opinn og laus við þær hindranir sem gera líf þitt fánýtt og áhrifalaust.

Bæn dagsins

Ég bið að öllum sem komi í snertingu við mig líði betur af þeim sökum. Ég bið að ég gæti þess að ala ekki í brjósti neitt það sem fælir menn frá.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.