Dagleg hugleiðing · 319. dagur ársins

15. nóvember

AA-hugleiðing dagsins

Ég er ekki eins hörundsár og áður, og ekki er eins auðvelt að særa tilfinningar mínar. Ég tek sjálfan mig ekki lengur eins alvarlega. Áður fyrr þurfti ekki mikið til að móðga mig, svo að mér fyndist ég smánaður eða hafður útundan. Það sem gerist hjá mér nú er ekki eins mikilvægt. Ein af orsökunum fyrir drykkju okkar var sú, að við gátum ekki ráðið við óþægilegar aðstæður svo að við reyndum að flýja þær. Við höfum lært að bjóða hinn vangann ef svo ber undir og brosa. Þegar ég er með allan hugann við AA, tek ég ekki svo mjög eftir persónulegum móðgunum. Þær virðast ekki vega eins þungt. Ég hef lært að hlæja að sjálfsvorkunn því að hún er svo barnaleg. Er ég minna hörundsár en áður?

Íhugun dagsins

Kraftaverkamáttur Guðs er jafn augljós nú sem fyrr. Ennþá gerast kraftaverk. Máttur hans breytir lífi manna og læknar rangsnúið hugarfar. Þegar maður treystir Guði fullkomlega og lætur honum eftir að velja réttu stundina, þá er kraftaverkamáttur Guðs að verki í lífi hans. Þess vegna getum við treyst Guði og haft takmarkalausa trú á mætti hans til að gera okkur heilbrigð að nýju, þegar hann vill.

Bæn dagsins

Ég bið að ég verði viss um að Guði sé ekkert um megn við að breyta lífi mínu. Ég bið að ég hafi trú á kraftaverkamætti hans.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.