AA-hugleiðing dagsins
Ef við leyfum alkóhólískri hugsun að taka sér bólfestu í huga okkar lengur eða skemur, erum við í fallhættu. Þess vegna verðum við að útiloka slíkar hugsanir strax, með því að neita þeim um aðgang og að setja þegar skapandi hugsanir í þeirra stað. Minnstu þess að fyrir þig er áfengi eitur. Mundu að þér er ómögulegt að drekka í hófi. Mundu, að eitt glas leiðir til annars og þú endar fullur. Mundu hvernig fór fyrir þér fyrrum vegna drykkjuskaparins. Hugsaðu um öll þau rök sem þú hefur lært í AA gegn því að þú drekkir úr þessu glasi. Láttu uppbyggjandi hugmyndir fylla hugann. Læt ég hugsanir mínar vera uppbyggilegar?
Íhugun dagsins
Veraldlegu verðmætamati, sem þér sýnist vera rangt, skaltu leitast við að víkja til hliðar og að taka einungis mark á því mati, sem þú telur vera rétt. Vertu ekki að girnast lof heimsins og athygli. Vertu einn þeirra, sem þrátt fyrir að þeir séu stundum spottaðir, hafa til að bera æðruleysi og hugarró, sem spottararnir finna aldrei. Fylltu flokk þeirra, sem skynja almættis lögmál tilverunnar, þótt honum, sem óséður er sé þess vegna oft hafnað.
Bæn dagsins
Ég bið að ég taki ekki of mikið tillit til áfellisdóma mannanna. Ég bið að ég meti hvaðeina eftir því, sem ég tel vera rétt.