Dagleg hugleiðing · 340. dagur ársins

6. desember

AA-hugleiðing dagsins

Þeir sem falla skammast sín — stundum skammast þeir sín svo mikið að þeir þora ekki að koma aftur inn í AA. Þeir þróa gömlu minnimáttarkenndina og segja sjálfum sér að þeir dugi ekki til neins, að þeir hafi svikið vini sína í AA, að þeir séu vonlausir, að þeir geti þetta aldrei. Þetta hugarástand er sennilega enn verra en það sem var í upphafi. Bakfallið hefur sennilega dregið eitthvað úr þeim máttinn. En AA-þjálfun þeirra er aldrei til einskis. Þeir vita alltaf að þeir geta snúið aftur ef þeir vilja. Þeir vita að Guðs hjálp er þeim enn til reiðu, ef þeir biðja um hana á ný. Trúi ég því, að ég geti aldrei með öllu glatað því sem ég hef lært í AA?

Íhugun dagsins

Enginn kemst algerlega hjá freistingum. Maður verður að búast við þeim og vera reiðubúinn að takast á við þær þegar þær koma. Enginn okkar er alveg öruggur. Maður verður að reyna að styrkja varnir sínar með daglegri íhugun og bæn. Þess vegna höfum við daglegar hugleiðingar. Þú verður að þekkja freistingarnar, þegar þær berja að dyrum. Það er alltaf fyrsta skrefið til þess að sigrast á freistingu að sjá hana greinilega sem slíka og láta hana ekki festa rætur í huga sér. Losaðu þig við hana, láttu hana falla úr huga þér jafnskjótt og hún skýtur upp kollinum. Farðu ekki að finna upp afsakanir fyrir að láta undan. Snúðu þér tafarlaust til æðri máttar með beiðni um hjálp.

Bæn dagsins

Ég bið að ég verði viðbúinn öllum freistingum. Ég bið að ég sjái þær glögglega og forðist þær með Guðs hjálp.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.