Dagleg hugleiðing · 348. dagur ársins

14. desember

AA-hugleiðing dagsins

AA-leiðin er vegur þjónustu. Án þjónustu tækist þetta ekki. Við höfum farið í „bindindi“ og líkað það illa. Við höfum strengt okkur heit og beðið óþolinmóð eftir að tíminn sem við settum okkur liði. Við höfum reynt á allan máta að hjálpa sjálfum okkur. En við fáum engan létti fyrr en við förum að hjálpa öðrum mönnum. Frumreglan er sú, að við verðum að miðla AA-stefnunni svo að við getum haldið henni. Fljót rennur í Dauðahafið og nemur þar staðar. Fljót rennur í tæran hyl og rennur síðan út úr honum aftur. Við þiggjum: svo gefum við. Ef við gefum ekki, helst okkur ekki á neinu. Er ég hættur við allar hugmyndir um að hafa AA út af fyrir mig eingöngu?

Íhugun dagsins

Reyndu að skoða andlegt líf sem kyrrlátan stað, einangraðan frá hringiðu heimsins. Hugsaðu um andleg heimkynni þín sem þann stað, sem yfirskyggður er af friði, æðruleysi og fullnægju. Hverfðu til þessa hljóðláta staðar að sækja þér styrk til að glíma við skyldur og vandamál dagsins. Vendu komur þínar þangað til hressingar þegar þú ert lúinn af skarkala hins ytra heims. Þögnin og einingin styrkja okkur.

Bæn dagsins

Ég bið að ég fái að eiga þennan griðastað áfram, þar sem ég kemst í einingu við Guð. Ég bið að ég megi endurnærast við að hugleiða eilífðina.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.