Dagleg hugleiðing · 345. dagur ársins

11. desember

AA-hugleiðing dagsins

Læknar hugsa sér AA-samtökin sem hóplækningar. Þetta er mjög þröngur skilningur á víðfeðmi stefnunnar. Þetta er rétt svo langt sem það nær, ef við lítum aðeins á hana sem aðferð til að ná og viðhalda allsgáðu líferni. En meira hangir á spýtunni. Markmið hóplækninga beinist að hjálpinni sem einstaklingurinn fær af því að taka þátt. Kjarni þeirra er eigingirnin. Þannig notum við félagsskap við aðra alkóhólista aðeins til að halda sjálfum okkur allsgáðum. En það er aðeins byrjunin á raunverulegu samfélagi. Finn ég hinn sanna AA-bróðurhug innst inni?

Íhugun dagsins

Flest okkar hafa orðið að lifa af skuggatímabil ævinnar, tíma mistakanna, myrkur lífsins, þegar við vorum altekin barningi og umstangi, áhyggjum og iðrun, þegar við fundum sárlega til harmleiks lífsins. En friður og fögnuður, sem gerir allt sem nýtt, fylgir því að gefa sig daglega æðri mætti á vald. Þegar því er náð skoðum við hvern dag sem fagnaðarríka ársólargjöf frá Guði okkur til handa, honum og meðbræðrum okkar til gagns. Nótt fortíðarinnar er liðin og dagurinn er okkar.

Bæn dagsins

Ég bið að ég þiggi þennan dag sem Guðs gjöf. Ég bið að ég verði Guði þakklátur fyrir hann og lifi hann glaður.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.