Codzienne rozważanie · 305. dzień roku

1 listopada

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég á mér von, þennan töfrakraft sem ég hélt ég hefði glatað. Framtíðin virðist ekki lengur skuggaleg. Ég lít ekki einu sinni til hennar, nema ég þurfi nauðsynlega að gera áætlanir. Ég reyni að láta hana sjá um sig sjálfa. Framtíðin er eintómir stakir dagar, héðan í frá og til eilífðarnóns. Vonin byggist á mörgum léttum augnablikum líðandi stundar. Ekkert getur komið fyrir mig án Guðs vilja. Ég er vongóður meðan ég held því sem ég á og það er af hinu góða. Á ég vonina?

Íhugun dagsins

Trúin er boðberinn, sem flytur Guði bænir þínar. Bænin getur dregið dám af reykelsisilm, leitað stöðugt hærra og hærra. Einlæg bæn er þrungin trúnaðartrausti, sem finnur nálægð Guðs og hefur sig upp til hans. Henni fylgir vissa um bænheyrslu. Við getum dag hvern fært Guði þakkarbæn fyrir náð hans, sem hefur leitt okkur og leyft okkur að byrja að lifa betra lífi. Þess vegna skulum við biðja til Guðs í trú, einlægni og þakklæti.

Bæn dagsins

Ég bið að ég verði viss um einhverja bænheyrslu. Ég bið að ég verði ánægður með hana, hvernig sem hún kemur fram.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.