No translation yet; the Icelandic original is shown.
AA-hugleiðing dagsins
Þegar menn koma aftur í AA eftir bakfall, er freistingin áleitn að segja ekki frá því. Enginn annar AA-félagi ætti að neyða þá til játninga. Þeir ráða því alveg sjálfir. Ef þeir hafa góða fótfestu í AA, gera þeir sér grein fyrir því, að þeir þurfa að tala um bakfall sitt á næsta fundi. Engin leið er til að komast hjá þessari skyldu ef hreinskilni býr að baki og fullur hugur til að hverfa aftur inn á AA-brautina. Þegar því er lokið kemur sjálfstraustið aftur. Þeir eru komnir heim. Aðrir ættu ekki að minnast oftar á bakfall þeirra. Þeir eru aftur orðnir góðir AA-félagar. Er ég umburðarlyndur gagnvart yfirsjónum annarra?
Íhugun dagsins
Styrkur, nýtt líf og andlegur máttur sprettur af einingu sálarinnar við Guð. Brauð er næring líkamans, en við lifum ekki á einu saman brauði. Að reyna að lúta vilja Guðs er undirstaða sannrar lífsbreytni. Við nærumst á þessari andlegu fæðu. Ef okkur förlast í þeim efnum, líður sálin hungursneyð. Allir tala um vannærða líkama en hvað um vannærðar sálir? Styrkur og friður fylgja því að njóta andlegrar fæðu.
Bæn dagsins
Ég bið að ég reyni ekki að lifa á brauði einu saman. Ég bið að andi minn lifi á því að gera vilja Guðs eins og ég skil hann.