Daily contemplation · day 346 of the year

12 December

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Prestar tala um andlegan félagsskap innan kirkjunnar. Þetta er miklu nær AA-leiðinni en tal um hóplækningar, slíkur félagsskapur er byggður á sameiginlegri trú á Guð og sameiginlegri viðleitni til að lifa andlegu lífi. Í AA reynum við að gera þetta. Við reynum líka að takast á við raunveruleg vandamál í lífi hvers annars. Við reynum að tjá okkur af fullri hreinskilni hvert við annað. Okkur langar sannarlega og einnig til að vera hvert öðru til gagns. Við reynum að kafa djúpt inn í einkalíf sérhvers félaga. Met ég djúpstæðan persónulegan félagsskap AA-samtakanna eins og vert er?

Íhugun dagsins

Kærleikur og ótti eiga aldrei samleið. Sjálft eðli hvors um sig er því til fyrirstöðu, að þeir þrífist hlið við hlið. Ótti er mjög sterkt afl. Þessvegna er hætt við að veikburða og viðkvæmur kærleikur láti yfirbugast af völdum ótta. En þróttmikill kærleikur í trausti á Guð, mun víst sigra óttann um síðir. Eina vísa leiðin til þess að gera óttann með öllu útlægan er að fylla hjarta þitt kærleikanum til Guðs.

Bæn dagsins

Ég bið að kærleikurinn hreki óttann úr lífi mínu. Ég bið að óttinn leggi á flótta fyrir kærleiksmætti Guðs.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.