Daily contemplation · day 344 of the year

10 December

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Drykkjubræðralagið kom í stað annars, því að oft var ekki völ á öðru betra. Í þá tíð var okkur ekki ljóst hvernig raunverulegur félagsskapur gæti verið. Á drykkjuvináttunni er bannvænn brestur. Hún er ekki byggð á traustum grunni og er mest á yfirborðinu. Hún byggir að mestu á löngun okkar til að notfæra drykkjubræður sjálfum okkur til skemmtunar og að notfæra sér aðra, er ótraust undirstaða. Drykkjubræðralaginu hefur verið sungið lof í lausu máli og bundnu og „er glóir vín á skál“ annáluð stund til vinafagnaðar. En okkur skilst að æðri stöðvar heilans dofni við áfengisneysluna svo að þvílíkur „vinafagnaður“ getur ekki verið á háu sviði. Hann getur í hæsta lagi verið gervifagnaður. Sé ég drykkjubræðralagið í sínu rétta ljósi?

Íhugun dagsins

Settu þér það takmark að þroska stöðugt með þér dag hvern meðvitundina um æðri mátt. Við verðum að reyna að betrumbæta samband okkar við Guð. Það gerist með bænum, hljóðum stundum og samfélagi. Oft þarftu ekki annað en sitja þögull frammi fyrir Guði og leyfa honum að tala gegnum hugsanir þínar. Reyndu að hugsa á hans veg. Þegar þú færð handleiðslu máttu ekki hika, heldur ótrauður taka til starfa og vinna verk þín eftir þeirri leiðsögn, í trausti þess, að þú sért að gera það, sem rétt er.

Bæn dagsins

Ég bið að ég finni frið í þeirri vitneskju, að Guð sé með mér. Ég bið að ég opni hug minn fyrir vísbendingum almættisins.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.