No translation yet; the Icelandic original is shown.
AA-hugleiðing dagsins
Þegar við lítum um öxl á drykkjuferil okkar, verður okkur að skiljast að líf okkar var í rúst af því að við vorum í uppnámi sjálf hið innra. Vandræðin voru í okkur sjálfum, ekki í mannlífinu. Lífið sjálft var nógu gott, við horfðum bara alltaf á það frá röngu sjónarhorni. Við horfðum á það gegnum botninn á vískíglasi, og allt sem við sáum var aflagað. Við komum ekki auga á fegurð, gæði og tilgang lífsins af því að sjón okkar var slævð. Við vorum í húsi, þar sem gluggarnir voru þannig, að við blöstu við sjónum annarra en gátum ekki horft út og séð hina eða hvaða þýðingu lífið hefði fyrir þá og ætti að hafa fyrir okkur. Við vorum blind þá en nú erum við sjáandi. Get ég nú séð lífið eins og það er í rauninni?
Íhugun dagsins
Óttastu ekkert illt, því að máttur Guðs ber það ofurliði. Hið illa getur unnið þeim einum verulegt tjón, sem ekki hafa leitað verndar æðri máttar. Þetta er ekkert álitamál, þetta er byggt á bjargfastri reynslu okkar. Segðu af sannfæringu við sjálfan þig að ekkert illt geti orðið þér að meini, á meðan þú reiðir þig á æðri mátt. Vertu öruggur um vernd náðar Guðs.
Bæn dagsins
Ég bið að óttinn við hið illa dragi ekki úr mér kjarkinn. Ég bið að í dag feli ég mig miskunn Guðs á vald.