Daily contemplation · day 343 of the year

9 December

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

AA-leiðin liggur til mannlegra samskipta. Við höfum lesið heilmikið um mannleg samskipti, en þau eru svo mikilvægur þáttur AA-stefnunnar að það er eins og við getum varla hugsað of mikið um hann. Manninum er ekki eðlilegt að lifa í einsemd. Líf einsetumannsins er ekki eðlilegt. Við þurfum öll að vera í einrúmi á stundum, en við getum ekki lifað til fulls án félagsskapar við aðra. Eðli okkar krefst þess. Líf okkar byggist að mestu á því. Okkur finnst AA félagsskapurinn sá besti í heiminum. Met ég að verðleikum þá þýðingu, sem AA-samtökin hafa fyrir mig?

Íhugun dagsins

Öll leitum við einhvers, en mörgum er óljóst hvers þeir vænta af lífinu. Þeir leita einhvers, af því þeir eru eirðarlausir og vansælir, án þess að vera þess vitandi að trúin á Guð getur gefið lífinu markmið og tilgang. Mörg okkar leita að minnsta kosti í undirvitundinni að mætti sem er æðri okkur sjálfum, því það gefur tilveru okkar þýðingu. Ef þú hefur fundið þennan æðri mátt, gæti þér orðið til að leiða aðra á rétta braut með því að sýna þeim að leit þeirra að tilgangi lífsins muni ljúka þegar þeir finna svarið í trú og trausti á Guð.

Bæn dagsins

Ég bið að sál mín verði laus við eirðarleysi og finni frið hjá Guði. Ég bið að ég finni sálarró við tilhugsunina um Guð og tilgang hans með lífi mínu.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.