No translation yet; the Icelandic original is shown.
AA-hugleiðing dagsins
Í dag munu margir alkóhólistar segja: „Þetta eru mér góð jól“. Þeir munu líta um öxl til jóla sem voru ekki eins og þessi. Þeir munu þakka Guði fyrir að þeir eru allsgáðir og fyrir sína nýfundnu lífshætti. Þeir munu hugsa um breytingarnar á lífi sínu eftir að þeir gengu í AA-samtökin. Þeir munu hugsa með sér að Guð hafi kannski látið þá lifa af háskann, á drykkjuferlinum, þegar þeir voru jafnvel oft við dauðans dyr, til þess að hann gæti nú notfært sér þá í stórfenglegu starfi AA-samtakanna. Eru þetta mér gleðileg jól?
Íhugun dagsins
Guðsríki er líka handa hinum lítilmótlegu, syndurunum, þeim sem iðrast. „Og þeir færðu honum gjafir - gull, reykelsi og myrru“. Færðu fram gull þitt — peninga þína og veraldlegar eignir. Færðu fram reykelsi þitt — helgun lífs þíns verðugum málstað. Færðu fram myrru þína — samúð, skilning og hjálpsemi. Leggðu þetta við fótskör Guðs honum til fullra nota.
Bæn dagsins
Ég bið að ég verði með sanni þakklátur þennan jóladag. Ég bið að ég hafi gjafir mínar með og leggi þær á altarið.