No translation yet; the Icelandic original is shown.
AA-hugleiðing dagsins
Ég get gert sitthvað, sem ég aldrei gat áður. Áfengið slævði framtak mitt og metnað. Ég hafði mig ekki upp í að gera neitt. Ég lét allt reka á reiðanum. Jafnvel þegar ég var drukkinn var ég of sljór til að greiða mér. Nú get ég sest niður og gert eitthvað. Ég get skrifað bréf ef þess þarf. Ég get átt símtöl eftir þörfum. Ég get unnið í garðinum. Ég get stundað tómstundaiðju mína. Ég hef þörf fyrir að skapa sitthvað, en þá sköpunarþörf kæfði áfengið. Ég er að nýju frjáls til athafna. Er ég búinn að endurheimta framtakssemina?
Íhugun dagsins
„Gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu“. Við finnum ekki sanna hamingju með því að leita hennar. Eftirsókn unaðarins færir manni ekki hamingju, þegar til lengdar lætur, heldur vonbrigði. Reyndu ekki að fá þessa gleðignótt með því að leita nautnar. Það gerist ekki þannig. Hamingja verður til með réttu líferni. Sönn hamingja er bein afleiðing þess að breyta í öllu tilliti eins og þú heldur að Guð ætlist til, að því er þig sjálfan og aðra menn varðar.
Bæn dagsins
Ég bið að ég leiti ekki alltaf unaðssemda sem markmiðs. Ég bið að ég geri mig ánægðan með hamingjuna, sem felst í því að gera það, sem rétt er.