No translation yet; the Icelandic original is shown.
AA-hugleiðing dagsins
Ég er ekki eins sjálfselskur og áður. Heimurinn snerist um mig sem miðdepil. Ég hugsaði meira um sjálfan mig, þarfir mínar og óskir, nautnir mínar, leiðir mínar, en um allt annað í heiminum. Það sem gerðist hjá mér var mikilvægara en nokkuð annað sem ég gat ímyndað mér. Ég reyndi að finna hamingjuna í eigingirni og var því löngum vansæll. Ég hef komist að því að eigingjörn hamingjuleit færir ekki sanna hamingju, með því að hugsa stöðugt um sjálfan mig, varð ég viðskila við það sem best er í lífinu. AA kenndi mér að hugsa minna um sjálfan mig og meira um aðra. Hefur sjálfselska mín minnkað?
Íhugun dagsins
Þegar eitthvað gerist, sem kemur þér í uppnám og veldur þér vonbrigðum, reyndu þá að skynja að erfiðleikar og vandræði lífsins eru ekki til þess ætluð að hefta andlegan þroska þinn, heldur til að reyna í þér þolrifin og að efla sóknarvilja þinn. Hverju sem þú kannt að mæta, verður þú annaðhvort, að yfirbuga það eða færa þér það í nyt. Láttu ekkert íþyngja þér til lengdar né heldur ætti neitt mótlæti að buga þig algjörlega eða bera af þér sigurorð. Máttur Guðs er ætíð til reiðu, þér til liðsinnis. Ekkert er svo erfitt viðfangs að ekki verði unninn bugur á, ellegar hægt að notfæra sér.
Bæn dagsins
Ég bið að ég skilji að ekkert mistekst ef Guð er með. Ég bið að mér auðnist með hans hjálp að lifa sigursælla lífi.