Daily contemplation · day 315 of the year

11 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Þegar ég hugsa um alla, sem hafa gengið þessa leið á undan mér, skilst mér að ég er bara einn einstaklingur og ekki sérlega mikilvægur. Það sem kemur fyrir mig er ekki sérstaklega mikilvægt þegar allt kemur til alls. Og AA hefur kennt mér að blanda geði við fólk, leita félagsskapar með því að mæta öðrum á miðri leið, að eiga sér einlæga ósk um að rétta öðrum hjálparhönd. Nú hef ég meiri sjálfsvirðingu og er ekki jafn viðkvæmur og áður. Ég hef komist að því að besta leiðin til að lifa þægilegu lífi í samræmi við sjálfan mig er sú að hafa verulegan áhuga á öðrum mönnum. Geri ég mér ljóst að ég er ekki sérlega mikilvægur þegar öllu er á botninn hvolft?

Íhugun dagsins

Þegar þú lítur til baka yfir liðna æfi, er auðvelt að láta sér detta í hug, að leystar þrautir hafi haft þann tilgang að búa þig undir eitthvert mikilvægt hlutverk í lífinu. Allt líf þitt hefur kannski verið hnitmiðað af Guði til þess að láta þig vinna eitthvað þarft í þessum heimi. Líf hvers manns er eins og forsmíð að mósaíkmynd. Hvaðeina sem fyrir þig kemur er eins og smásteinn í myndinni, og sérhver smásteinn fellur inn í fullgerða mynd lífs þíns, sem Guð hefur dregið upp.

Bæn dagsins

Ég bið að ég þurfi ekki að sjá allt mynstur lífs míns. Ég bið að ég beri traust til myndasmiðsins.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.