Daily contemplation · day 324 of the year

20 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Ég reyni ekki framar að flýja frá lífinu með drykkjuskap. Drykkjuskapurinn skóp mér gerviheim sem ég reyndi að lifa í. En raunveruleikinn sneri aftur með morgunskímunni og sífellt var erfiðara að horfast í augu við hann, því ég var úrræðalaus. Sérhver flóttatilraun gróf undan manndómi mínum. Allir vita að áfengi veitir okkur flóttaleið frá raunveruleikanum með því að slaka á hömlum okkar. Áfengið deyfir heilafrumurnar sem ráða þróuðustu eiginleikum okkar, og við erum lögð af stað inn í gerviheim ölvímunnar. AA kenndi mér að flýja ekki af hólmi, heldur horfast í augu við staðreyndir. Hef ég gefist upp á að flýja lífið?

Íhugun dagsins

Reyndu að tengja vonir þínar við náð Guðs, þegar þú átt rólega íhugunarstund, í þeirri vitneskju, að betra muni vera í vændum, hvað sem framtíðin kann að bera í skauti sér. Byggðu ekki allar vonir og þrár á efnislegum hlutum. Ofgnótt leiðir til þreytu. Bind því vonir þínar við andleg verðmæti, svo að þú þroskist andlega. Lærðu í vaxandi mæli að treysta á mátt Guðs, og vegna þeirrar tiltrúar hlotnast þér innsæi í æðri gildi andlegra verðmæta.

Bæn dagsins

Ég bið að efnishyggja yfirbugi mig ekki. Ég bið að ég geri mér grein fyrir mikilvægi andlegra verðmæta.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.