Daily contemplation · day 317 of the year

13 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Hvernig get ég dæmt aðra? Hef ég sannað það með ágæti lífs míns að ég viti allt best? Einmitt hið gagnstæða. Líf mitt var misheppnað þar til ég kom í AA-samtökin. Ég gerði allar vitleysur sem hægt var að gera. Ég fór allar þær villigötur sem um var að velja. Er ég hæfur til að dæma annað fólk með hliðsjón af eigin ferli? Tæplega. Ég hef lært í AA að dæma ekki aðra menn. Ég hef svo oft rangt fyrir mér. Best er að láta hvern og einn dæmast af verkum sínum. Það er ekki mitt mál. Er ég vægari en áður í dómum um aðra?

Íhugun dagsins

Á hugleiðslustund, er eins og enn hljómi í eyrum okkar: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld:“ Það er eins og við heyrum Guð segja þetta við okkur aftur og aftur. „Komið til mín“, til að finna lausn á hverjum vanda, að sigra hverja freistingu, að sefa allan ótta, vegna alls er við þörfnumst, líkamlega andlega eða trúarlega en heyrum þó fyrst og fremst. „Komið til mín“ til að sækja ykkur styrk til að lifa í hugans ró og til að eiga mátt til gagnsemi og dugnaðar.

Bæn dagsins

Ég bið að í dag sæki ég til Guðs það, sem ég þarf til að lifa. Ég bið að ég finni sannan sálarfrið.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.