Daily contemplation · day 318 of the year

14 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Það er betri aðferð en að dæma aðra að leita að því góða í fari þeirra. Ef þú leitar nógu vel og lengi, ættirðu að geta fundið eitthvað gott í hverjum og einum. Í AA-samtökunum lærði ég að mitt hlutverk er að laða fram hið góða, fremur en að gagnrýna hið slæma. Allir alkóhólistar eru vanir því að vera dæmdir og gagnrýndir. Það hefur aldrei hjálpað neinum til að verða allsgáður. Við segjum mönnum í AA að þeir geti breyst. Við reynum að laða fram það besta í fari þeirra. Við uppörvum góða eiginleika látum sem við sjáum ekki þá slæmu. Mönnum verður ekki snúið til betri vegar með gagnrýni. Reyni ég að sjá hið góða í fari manna?

Íhugun dagsins

Hugur Guðs hlýtur að geyma áætlun fyrir heiminn. Við trúum því að hún felist í félagsskap karla og kvenna með föðurlegri forsjá Guðs. Lífsáætlun þín hlýtur líka að vera í huga Guðs. Þú getur leitað handleiðslu Guðs í hljóðri hugleiðslu, svo hann geti opinberað þér ætlun sína fyrir þig í dag. Þá geturðu lifað daginn í samræmi við leiðsögnina. Margir verja lífinu ekki í samræmi við tilætlan Guðs og eru af þeim sökum vansælir. Þeir hafa farið á mis við áætlun lífs síns.

Bæn dagsins

Ég bið að ég fylgi í dag forsögn Guðs. Ég bið að ég skynji guðlega forsjón í því sem ég geri í dag.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.