Daily contemplation · day 334 of the year

30 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Bakföll koma fyrir AA-menn. Sú kenning hefur komið fram, að hér sé ekki um föll að ræða, heldur drykkjuskap að yfirlögðu ráði, því að við verðum að hugsa um að fá okkur einn áður en við tökum hann í alvöru. Hugsunin kemur alltaf á undan framkvæmdinni. Lagt er til að menn hafi alltaf samband við AA-félaga áður en þeir drekka fyrsta snafsinn. Ef þeir gera það ekki er líklegt að þeir hafi verið búnir að ákveða drykkju. Samt eru hugsanirnar sem eru undanfari þess að fá sér einn, oft ómeðvitaðar að miklu leyti. Venjulega er mönnum ekki ljóst hversvegna þeir gerðu það. Þess vegna er algengt að kalla þessa viðburði bakföll. Er ég á verði gagnvart ranghugmyndum?

Íhugun dagsins

„Hæli er hinn eilífi Guð“. Hann er griðland, skjól frá áhyggjum lífsins. Þú getur forðað þér frá misskilningi annarra, með því að leita skjóls í eigin hugleiðingarafkimum. En hvert áttu að flýja frá sjálfum þér, frá ótta við mistök, frá vanmætti þínum, frá ófullkomleika þínum? Ekkert annað en til hins eilífa Guðs, skjóls þíns, uns andi hans umlykur anda þinn, sem losnar frá smæð sinni og vanmætti og samstillist aftur almættinu.

Bæn dagsins

Ég bið að ég losni við annmarka mína með hjálp ómæliskærleika Guðs. Ég bið að andi minn samstillist við anda Guðs.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.