Daily contemplation · day 330 of the year

26 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Við skulum íhuga hvað áunnist hefur með nýjum lífsháttum okkar. Við höfum losnað við mikið af ótta okkar, gremju, minnimáttarkennd, neikvæðum sjónarmiðum, eigingirni, nöldri, móðgunargirni, samviskukvölum, frestunaráráttu, hömlulausu kynlífi, sóun fjármuna, leiðindum, uppgerðar fullkomnunaráráttu, afbrýðisemi og öfundsýki. Við erum fegin að vera laus við drykkjuskapinn, og við erum líka fegin að vera laus við fyrrtalda bresti. Nú getum við haldið fram sem horfir í nýjum lífsháttum eins og AA-stefnan boðar. Er ég tilbúinn að halda áfram á nýju lífsbrautinni?

Íhugun dagsins

„Hann sem hefur augu til að sjá, látum hann sjá“. Sjáandi auga sér góðan heim. Bið því um glöggt auga, svo að þú sjáir tilgang Guðs í öllu, sem gott er. Bið þú að trú þín verði nógu sterk til þess að þú sjáir umhyggju Guðs gagnvart þér. Reyndu að sjá hvernig Guð hefur hingað til komið þér heilum í höfn, svo að þú mættir verða til gagns í þessum heimi. Trúin gefur þér sjón til að sjá umhyggju Guðs og tilgang hvarvetna.

Bæn dagsins

Ég bið að auga mitt sjái. Ég bið að með augum trúarinnar sjái ég allsstaðar markmið Guðs.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.