Daily contemplation · day 325 of the year

21 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Ég er hættur að sóa fjármunum mínum, heldur reyni að verja þeim til góðs. Ég fleygði peningum í allar áttir eins og ég ætti nóg, ég var drukkinn, eins og okkar allra var siður. Það gaf mér tilfinningu um mikilvægi mitt - milljónamæringur í einn dag. Það var nöturlegt að vakna morguninn eftir, með tómt veski og jafnvel líka nokkrar ólæsilegar ávísanir. Hvernig gat ég verið svona vitlaus? Hvernig get ég nokkru sinni bætt þetta upp? Svona hugsanir eru niðurdrepandi. Þegar við erum orðin allsgáð, eyðum við peningunum, sem við unnum fyrir með súrum svita, eins og lög gera ráð fyrir. Sum okkar gætu kannske verið örlátari við AA-samtökin, en við köstum að minnsta kosti ekki peningum okkar á glæ. Ver ég peningunum mínum vel?

Íhugun dagsins

Manni er ætlað að líða vel og þægilega í þessum heimi. Samt lifa sumir í þögulli örvæntingu. Það er andstæða þess að lifa í friði og ró. Láttu þá sem umgangast þig sjá rósemi þína ljóslega. Láttu aðra sjá að þér líði vel, og þegar þeir sjá það, láttu þá vita að það stafi af því að þú trúir á æðri mátt. Að gugna er ekki Guði þóknanleg leið, strembin og dauf. Trúin mildar él mótlætisins og gefur okkur frið mitt í hita og þunga bardagans.

Bæn dagsins

Ég bið þess að lífshættir mínir verði mér þægilegri. Ég bið að ég verði í betri sátt og friði við sjálfan mig.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.