Daily contemplation · day 316 of the year

12 November

No translation yet; the Icelandic original is shown.

AA-hugleiðing dagsins

Ég er ekki eins gagnrýninn á aðra menn og áður fyrr, hvorki innan né utan AA-samtakanna. Ég var vanur að gera lítið úr öllum. Nú skil ég að ómeðvitað var ég að reyna að upphefja sjálfan mig. Ég öfundaði menn sem lifðu eðlilegu lífi. Ég skildi ekki, hversvegna ég gat ekki verið eins og þeir. Þess vegna gerði ég lítið úr þeim. Ég kallaði þá lítilmenni eða hræsnara. Ég var alltaf að leita að brestum annarra. Ég hafði yndi af að rífa niður þá sem ég kallaði smáborgara eða snobbara. Ég hef komist að því að ég geri engan að betri manni með því að gagnrýna hann. Það hefur AA kennt mér. Gagnrýni ég annað fólk minna en áður?

Íhugun dagsins

Áður en Guð veitir þér bænheyrslu, verður þú að viðurkenna vanmátt þinn. Áður en þú getur beðið Guð um styrk vegna aðstæðna þinna, verður þörf þín að vera þér ljós. En þegar þörf þín er orðin þér ljós, hljómar bæn þín hærra en öll himnesk hljómlist. Guðfræðilegar rökræður leysa ekki vandamál leitandi sálar, heldur einlægt ákall hennar til Guðs um styrk og einlæg vissa hennar um að bænin verði heyrð og uppfyllt.

Bæn dagsins

Ég bið að ég geti beint orðlausu ákalli mínu eftir hjálp út í auðnina. Ég bið að ég öðlist fulla vissu fyrir því að það heyrist einhvers staðar, einhvern veginn.

New dayA day chosen at random

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.