Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Góðgjörðasemi á ég, öðru nafni kærleika. Hinn rétta kærleika sem ekki er sjálfselskufull ástríða, heldur óeigingjörn einlæg löngun til að hjálpa öðrum. Að gera það sem öðrum kemur best, að meta annarra hag meira en mínar langanir. Að setja Guð í fyrirrúm, þá aðra menn, en síðast sjálfan mig. Góðgjörðasemin er blíð og góð tilfinning, skilningsrík, umburðarlynd og full þjónustulundar. Hana hefur AA gefið mér. Það sem ég geri fyrir sjálfan mig fer forgörðum, það sem ég geri fyrir aðra kann að vera skráð einhversstaðar í eilífðinni. Er ég góðgjörðasamur?
Íhugun dagsins
„Biðjið, og yður mun gefast“. Vald Guðs er ótakmarkað. Það er engum takmörkum háð hverju máttur hans getur áorkað í mannlegum hjörtum. En við verðum að vera fús til að veita mætti Guðs viðtöku og við verðum að biðja um hann. Séum við skeytingarlaus er okkur meinað að njóta hans. Við getum þrætt okkar eigingjörnu leið án þess að biðja um hjálp Guðs, og máttur hans fellur okkur ekki í skaut, en ef við trúum á Guð, gefst okkur sá styrkur sem við þörfnumst. Þegar við biðjum Guð í einlægni um styrk fáum við hann í ríkum mæli.
Bæn dagsins
Ég bið að ég sé fús til að njóta máttar Guðs. Ég bið að ég haldi áfram að biðja um þann styrk, sem ég þarf.