Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
AA-stefnan er allsgáð lífsleið, samt falla menn. Af hverju falla þeir? Af hverju göngum við ekki öll í AA-samtökin og verðum allsgáð þaðan í frá? Til þess liggja margar ástæður, en það hefur verið sannað án undantekninga, að þegar við erum einu sinni orðin alkóhólistar, getum við aldrei framar drukkið í hófi. Við vitum ekkert dæmi þess að þetta hafi verið afsannað. Margir alkóhólistar hafa reynt að drekka eftir allsgáð tímabil allt frá nokkrum dögum til nokkurra ára og við vitum ekki um neinn sem hefur náð þeim árangri að verða hófdrykkjumaður. Gæti hugsast að ég væri eina undantekningin frá reglunni?
Íhugun dagsins
„Við erum samankomin í þínu nafni:“ Í fyrsta lagi erum við mætt til fundar, knýtt hollustu böndum við Guð og innbyrðis. Síðan, og að þessu uppfylltu, er Guð í návist okkar. Síðan, þegar Guð er meðal okkar, berum við fram sameiginlega bæn upphátt. Síðan verðum við bænheyrð af vilja Guðs. Þegar svar hefur borist við bænum okkar, erum við samtengd í ævarandi andlegu bróðerni.
Bæn dagsins
Ég bið, að ég reynist hollur Guði og öðrum mönnum. Ég bið að ég lifi lífi mínu í dag í nánum tengslum við Guð og aðra menn.