Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
AA-stefnan er allsgáð lífsleið samtaka þjónustu og trúar. Við skulum líta á þessi atriði hvert fyrir sig og gá hvort við fetum réttu leiðina. Fyrst og fremst kemur allsgáð líf hjá okkur. Það er undirstaða hinna atriðanna. Þeirra gætum við ekki notið værum við ekki allsgáð. Öll leitum við til AA-samtakanna til þess að hætta drykkju og höldum áfram til að hjálpa öðrum til að verða allsgáðir. Fyrst, seinast og sífellt er takmarkið að vera allsgáð. Við getum ekki byggt okkur upp sómasamlegt líf nema við höldumst allsgáð. Er ég á AA-leiðinni?
Íhugun dagsins
Mannleg hamingja er í því fólgin að óska þess af alhug að breyta eftir vilja Guðs. Í fyrstu kjósum við að breyta að eigin geðþótta. Við viljum fá óskum okkar fullnægt. Við hrifsum til okkar, en látum ekkert af hendi rakna. Smám saman rennur það upp fyrir okkur að við erum ekki hamingjusöm þegar við erum eigingjörn, og við förum að taka smá tillit til þess, sem aðrir vilja. En jafnvel það leiðir ekki til fyllstu gleði, og við komumst að raun um að eina leiðin til sannrar hamingju er að leitast við að breyta eftir Guðs vilja. Á íhugunarstund reynum við að fá handleiðslu til þess að finna vilja Guðs okkur til handa.
Bæn dagsins
Ég bið að ég láti vilja minn lúta vilja Guðs. Ég bið að ég njóti handleiðslu í dag svo að ég viti til hvers Guð ætlast af mér.