Codzienne rozważanie · 326. dzień roku

22 listopada

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég hef losnað við mesta leiðann. Eitt af því sem erfiðast er fyrir nýliða í AA að tileinka sér, er að láta sér ekki leiðast, þó maður sé allsgáður. Drykkjuskapur var alltaf viðbragðið við öllum þreytandi mönnum og leiðinlegum aðstæðum. En þegar þú hefur fengið áhuga á AA, og ert farinn að gefa AA tíma þinn og eldmóð, þá ættu leiðindi ekki að vera þér vandamál. Nýtt líf með síkvikum áhugamálum opnast þér. Líf án áfengis ætti að færa þér svo mörg ný áhugasvið að þú ættir ekki að hafa tíma til að láta þér leiðast. Er ég hættur að óttast leiðindi?

Íhugun dagsins

„Ef ég hefði ekki kærleika, væri ég sem hljómandi málmur eða hvellandi bjalla“. Kærleikur er að bera slíka umhyggju fyrir öðrum að langa af alhug til að gera eitthvað fyrir þá. Bros, uppörvun, kærleiksorð, er vængjum borið í öllu sínu látleysi, þó að mælskusnilld hljómi fyrir daufum eyrum. Notaðu tómstundir dagsins til þess að reyna að gleðja aðra svolítið. Leiðindi koma af því að hugsa of mikið um sjálfan sig.

Bæn dagsins

Ég bið að lítið kærleiksverk af minni hendi varpi birtu á daginn. Ég bið að ég sigríst í dag á sjálfshyggjunni sem veldur mér leiðindum.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.