Codzienne rozważanie · 329. dzień roku

25 listopada

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég er ekki lengur haldinn öfund og afbrýðisemi yfir eignum og hæfileikum annarra. Þegar ég drakk, var ég á laun fullur afbrýðisemi og öfund gagnvart þeim sem gátu drukkið í hófi, nutu ástar og virðingar fjölskyldna sinna, sem lifðu eðlilegu lífi og voru teknir sem jafningjar meðal félaga sinna. Ég taldi mér trú um að ég væri engu lakari en þeir en ég vissi að svo var ekki. Nú þarf ég ekki lengur að vera öfundsjúkur. Ég reyni að girnast ekki það sem ég verðskulda ekki. Ég er ánægður með það sem ég hef áunnið mér með viðleitni minni til réttra lífshátta. Gangi þeim vel sem hafa það til að bera sem ég hef ekki. Ég er að minnsta kosti að gera mitt besta. Er ég laus við eitur öfundsýkinnar?

Íhugun dagsins

„Sál mín er eirðarlaus, uns hún finnur hvíld hjá þér“. Fljótið streymir viðstöðulaust, þangað til það hverfur í hafið. Andi sérhvers okkar þráir hvíld í anda Guðs. Við þráum löngum að okkur hlotnist friður, hvíld og fullnæging, sem við höfum aldrei öðlast í heiminum eða í eltingaleiknum við hann. Sumir vita ekki, hvað er þeim fyrir bestu, og loka hugarheimi sínum fyrir anda Guðs. Þeir geta ekki eignast sannan frið.

Bæn dagsins

Ég bið að ég finni fyrir heilögu eirðarleysi. Ég bið að sál mín finni hvíld hjá Guði.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.