Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Hræðsla og áhyggjur yfirbuguðu mig. Þetta magnaðist við drykkjuskapinn. Ég hafði áhyggjur af því sem ég hafði gert þegar ég var drukkinn. Ég hræddist afleiðingarnar. Ég var hræddur við að líta framan í aðra vegna óttans um að allt kæmist upp. Óttinn hélt mér stöðugt í heljargreipum. Ég var sem skálfandi rekald af hræðslu og áhyggjum. Ég var ein taugahrúga. Ég var hræddur við að mér yrðu á mistök, við framtíðina, við ellina, við heilsuleysi, við timburmenn, við sjálfsmorð. Ég var á villigötum í hugsun og atferli. Þegar AA sagði mér að leggja ótta minn og áhyggjur í hendur æðri máttar, gerði ég það. Nú reyni ég að hafa hugann á brautum trúar í stað kvíða. Hef ég sett trúna í stað óttans?
Íhugun dagsins
Andlegur máttur er Guð að verki. Stundum getur Guð aðeins komið sínu fram með því að nota menn. Þegar þú leyfir Guði að notfæra sér þig, hversu vanmegna sem þú ert, verða orð þín og verk andlega máttug. Það ert ekki þú einn sem veldur breytingum í lífi annarra. Almættið leggur hönd á þinn plóg. Guðs er mátturinn. Hann getur gert þig að verkfæri til kraftaverka í lífi annarra.
Bæn dagsins
Ég bið að ég leitist við að leyfa mætti Guðs að nota mig í dag. Ég bið, að ég losni við þær hindranir sem standa milli mín og máttar Guðs.