Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Við erum ánægð ef okkur fer fram í AA, í stað þess að látast vera fullkomin. Aðalatriðið er að vera á framfarabraut. Við gerum okkur grein fyrir því að fullkomnunaráráttan stafar af hroka og til að forðast auðmýkingu. Við AA-menn erum undir það búnir að verða á mistök og jafnvel að hrasa ef við höldum stöðugt fram á við. Við höfum ekki eins mikinn áhuga á því sem við erum eins og hvað úr okkur muni verða. Við erum á leiðinni, ekki komnir á áfangastað. Og við verðum á leiðinni alla ævi. Enginn AA-maður hefur nokkru sinni komist á leiðarenda. En við erum á batavegi. Tek ég framförum?
Íhugun dagsins
Sérhver nýr dagur býr yfir tækifæri til þess að inna af hendi eitthvert smáræði, sem hjálpar til að skapa betri heim, sem auðveldar að Guðs ríki birtist hér á jörðu. Skoðaðu viðburði dagsins sem tækifæri til þess að gera eitthvað Guði þóknanlegt. Allt sem þú gerir í þeim anda, mun verða blessunar aðnjótandi. Verjir þú dagsverkinu í þágu Guðs verður þú þátttakandi í starfi hans. Þú þarft ekki að vinna nein stórvirki.
Bæn dagsins
Ég bið, að mitt fyrsta verk í dag verði óeigingjarnt og kærleiksríkt. Ég bið að ég verði ánægður með smáræði, ef það er rétt.