Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Ég er hættur að neita að gera eitthvað nema ég geti gert það á fullkominn hátt. Margir okkar alkóhólista nota þá viðbáru til að gera alls ekkert, ef við getum ekki gert það lýtalaust. Við þykjumst krefjast fullkomnunar. Okkur lætur vel að segja fólki, hvernig eigi að gera hlutina, en þegar við þurfum að leggja það á okkur að gera sjálf, verðum við stöð. Við segjum við sjálf okkur: „Mér geta orðið á mistök, best er að láta það eiga sig“. Í AA setjum við markið hátt, en það hindrar okkur ekki í að reyna. Sú staðreynd, að við náum aldrei takmarki okkar til fulls hindrar okkur ekki í því að gera okkar besta. Er ég hættur að fara í felur bak við hulu fullkomnunaráráttunnar?
Íhugun dagsins
„Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraustir. Ég hef sigrað heiminn“. Vertu hvergi smeykur. Vertu frjáls og óbeygður í anda. Þú getur verið með heilli há og ósnortinn, þrátt fyrir mistök og öll þeirra áhrif, ef þú lætur anda þinn sigra heiminn, rísa yfir ys og þys jarðlífsins og hverfa til leyndra heimkynna fullkomins friðar og trúnaðartrausts. Mundu það þegar á hólminn er komið að þú nýtur hjálpar Guðs og að ekkert getur að fullu komið þér á kné.
Bæn dagsins
Ég bið að ég sé vongóður og bjartsýnn. Ég bið að ég verði óhræddur við vald mistakanna.