Codzienne rozważanie · 322. dzień roku

18 listopada

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég er hættur að slá á frest. Ég var alltaf að fresta til morgundagsins og afleiðingin var sú, að ekkert komst í framkvæmd. „Það kemur annar dagur eftir þennan dag“ var orðtak mitt í stað þess að segja „Gerðu það strax“. Ég var með stórkostlegar fyrirætlanir þegar ég var undir áhrifum áfengis. Þegar ég var ódrukkinn var ég of upptekinn af að komast yfir timburmennina til að koma mér að verki. „Ég geri það einhvern daginn“ - en ég gerði það aldrei. Ég hef lært í AA að það er betra að gera vitleysu öðru hverju en að gera aldrei neitt. Við lærum af mistökunum. En við verðum að hefjast handa strax en fresta ekki til morguns. Hef ég lært að hefjast strax handa?

Íhugun dagsins

„Láttu ekki ljós þitt undir mæliker. Statt upp, skín þú, því að ljós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp fyrir þér“. Dýrð Drottins skín í fegurð skapgerðar þinnar. Hún rís upp hið innra með þér, jafnvel þótt þú verðir hennar ekki mikið var. „Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis.“ Dýrð Drottins er skærari en svo, að hún greinist ljóslega dauðlegum mönnum á jörðu hér. En þegar þú reynir að láta þessa birtu endurspeglast í lífi þínu, skín hún að nokkru innra með þér.

Bæn dagsins

Ég bið að verða endurskin himnesks ljóss. Ég bið að eitthvað af geislum þess skíni á líf mitt.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.