Codzienne rozważanie · 323. dzień roku

19 listopada

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Við tölum ekki mikið um kynlíf í AA. Samt er það meðal ávaxtanna af nýjum lífsháttum okkar, að kynlífið hefur hlotið sinn rétta sess. AA-bókin segir að mörg okkar hafi þurft rækilegrar endurhæfingar við á því sviði. Þar segir líka að við höfum vegið og metið öll kynferðisleg sambönd okkar með tilliti til þess, hvort þau byggðust á eigingirni eða ekki. „Við höfðum það alltaf hugfast, að kynhvötin væri okkur af Guði gefin og því væri hún af hinu góða, sem hvorki mætti beita af léttúð og eigingirni, né heldur leggja á fæð og fyrirlitningu“. Við getum beðið Guð um að móta hugsjónir okkar og hjálpa okkur til að lifa í samræmi við þær. Hef ég náð réttum tökum á kynlífi mínu?

Íhugun dagsins

„Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?“ Reyndu að lyfta hugsunum þínum upp úr undirdjúpum óþverra, illsku og sora heimsins upp til hátinda góðsemi, sæmdar, og fegurðar. Temdu innsæi þínu að reyna við hærri markmið. Temdu það æ betur uns fjarlægar hæðir verða þér kunnugri. Himnahæðir , þaðan sem hjálpin kemur, verða þér nálægari og kærari og tál heimsins virðist fjær.

Bæn dagsins

Ég bið að ég sé ekki alltaf niðurlútur. Ég bið að ég setji markið hátt.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.