Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Hugrenningar okkar áður en við fáum bakfall, eru oft ómeðvitaðar að miklu leyti. Spurning er, hvort undirmeðvitund okkar losnar nokkurn tíma meðan við lifum alveg við alkóhólískar hugsanir. Til dæmis dreymir sum okkar að við séum full meðan við sofum, jafnvel eftir nokkur allsgáð ár í AA. Undirmeðvitund okkar aðlagaðist alkóhólískum hugsunarhætti vel í drykkjuskapnum og það er ekki víst að við losnum alveg við slíkar hugrenningar meðan við lifum. En þegar sjálfsmeðvitund okkar er vel á varðbergi gagnvart drykkjuskap, höldum við áfram að vera allsgáð og undirmeðvitundin truflar okkur sjaldan. Er ég enn að efla sjálfsmeðvitund mína?
Íhugun dagsins
Höfum samúð með og vorkennum þeim, sem falla í freistni, en þær kringumstæður þekkjum við stundum af eigin reynd, og við berum ábyrgð gagnvart þeim. Samúð felur ætíð í sér ábyrgð. Meðaumkun er gagnslaus, því hún bætir ekkert. En hvert sem samúðin leiðir okkur fylgir ábyrgðin með. Þegar við erum hrærð af samúð, eigum við að fara til hins þjáða og búa um sár hans eftir bestu getu.
Bæn dagsins
Ég bið að ég finni til samúðar með þeim, sem freistingin þjáir. Ég bið að ég vorkenni öðrum í eldraunum þeirra.