Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Ég þarf á AA-stefnumiðunum að halda til að glæða falinn lífsneista innra með mér, góða lífið, sem var mér glatað, en ég fann aftur í samtökunum. Þetta innra líf þróast hægt en örugglega, með mörgum bakföllum, mistökum og óhöppum, en samt í áttina. Meðan ég halla mér að AA-samtökunum, heldur líf mitt áfram að þróast, og enn veit ég ekki, hvað úr því verður, en ég veit að það verður gott. Annað þarf ég ekki að vita. Það verður gott. Þakka ég Guði fyrir AA?
Íhugun dagsins
Byggðu líf þitt á traustum grunni innilegs þakklætis til Guðs fyrir alla blessun hans og sannrar auðmýktar vegna óverðugleika þíns til að verða hennar aðnjótandi. Láttu sjálfsaga vera umgjörð lífs þíns; Láttu aldrei eftir þér að verða eigingjarn, latur eða sjálfsánægður. Byggðu veggi lífs þíns úr þjónustu við aðra, hjálpaðu þeim að rata um lífsins vegu. Byggðu þak lífs þíns úr fyrirbænum og hljóðum stundum, meðan þú bíður eftir handleiðslu Guðs. Gerðu garð umhverfis líf þitt úr hugarró, æðruleysi og trúarvissu.
Bæn dagsins
Ég bið að ég byggi líf mitt á meginstefnumiðum AA-samtakanna. Ég bið að byggingin verði góð þegar verkinu er lokið.