Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Þrátt fyrir allt sem við höfum lært í AA, stingur gamli hugsanagangurinn upp kollinum, stundum af gífurlegum krafti, og fyrir kemur að sum okkar falla. Við gleymum eða neitum að biðja okkar æðri mátt um hjálp, það er eins og við þurrkum vísvitandi alla AA-þjálfun út úr huganum, og fáum okkur einn snafs. Loks verðum við full. Við erum aftur í sömu sporum og við vorum í upphafi. Þeir sem hafa fallið, ljúka upp einum munni um að það hafi ekki veitt þeim neina ánægju. Þeir segja að AA hafi tekið frá þeim alla ánægjuna af drykkjuskapnum. Þeir vissu að þeir voru að gera rangt. Gamla geðsveiflan var aftur komin á fulla ferð. Þeir höfðu viðbjóð á sjálfum sér. Er ég sannfærður um að ég geti aldrei fengið neina ánægju af því að neyta áfengis?
Íhugun dagsins
Gefðu þeim eitthvað, sem erfitt eiga, eru ruglaðir. Gef þeim eitthvað af samúð þinni, bænir þínar, tíma þinn, kærleika þinn, hugsun þína, sjálfan þig. Gefðu því næst eitthvað af sjálfstrausti þínu, eins og þú hefur hlotið það að gjöf fyrir náð Guðs. Gefðu af sjálfum þér og kærleiksríkri samúð þinni. Gefðu það besta sem þú átt, þeim sem þarfnast þess og vill veita því viðtöku. Gefðu eftir þörf, en aldrei eftir verðleikum. Mundu að það að gefa ráð kemur aldrei í stað þess að gefa af sjálfum sér.
Bæn dagsins
Ég bið að ég gefi svo sem ég hef þegið. Ég bið að ég finni rétta svarið handa þeim, sem eru ráðvilltir.