Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Tímalengd allsgáðs lífs okkar skiptir minna máli en gæði þess. Maður sem hefur verið í AA svo árum skiptir er kannski ekki í jafn góðu sálarástandi og maður sem hefur aðeins verið með í nokkra mánuði. Það er mjög ánægjulegt að hafa verið AA-félagi lengi og við nefnum það oft. Það getur stundum verið nýliðum til styrktar, því að vera kann að þeir segi þá við sjálfa sig: „Fyrst þeir gátu þetta, þá get ég það“. Samt verða eldri félagarnir að skilja að þeir eru aðeins í eins staups fjarlægð frá fylliríi meðan þeir lifa. Hversu staðfast er mitt allsgáða líf?
Íhugun dagsins
„Og yfir meira mun ég setja þig:“ Við getum glímt við stærri verkefni með aukinni reynslu í nýjum lífsháttum. Við getum fengið allan styrk, sem okkur vantar, frá almættinu. Á daglegri vegferð okkar getum við notið náðar hans, anda hans til að verða hæfari. Tækifæri til að bæta heiminn eru á hverju strái. Við getum gert meira en við gerum. En við vinnum ekki upp á eigin spýtur. Máttur Guðs er bakhjarl allra góðra verka.
Bæn dagsins
Ég bið að ég finni rétta hillu í lífinu. Ég bið að náð Guðs geri starf mitt árangursríkara.