Codzienne rozważanie · 353. dzień roku

19 grudnia

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Óvissu- og efasemdarmennirnir segja að okkur sé ómögulegt að finna rök tilverunnar. Margir hafa reynt það og mistekist. En aðrir hafa lagt gáfnahrokann til hliðar og sagt við sjálfa sig: Hvernig get ég sagt að Guð sé ekki til? Hvernig get ég sagt að lífið hafi engan tilgang? Trúleysinginn lýsir þessu yfir: „Lífið spratt af engu, það þýtur markmiðslaust út í tómið“. Aðrir lifa fyrir líðandi stund og hugsa hvorki um, hversvegna þeir séu hér né hvert þeir ætla. Þeir gætu eins verið kuðungar á sjávarbotni, í harðri skel skeytingarleysis. Þeir ætla sér ekkert og þeim er sama um allt. Er mér sama, hvert ég stefni?

Íhugun dagsins

Við getum litið á efnisheiminn eins og leir í höndum listamanns, sem ýmist mótar úr honum eitthvað fallegt eða eitthvað ljótt. Við þurfum ekki að óttast hluti, þeir eru hvorki góðir né vondir í siðferðilegum skilningi. Ekki virðist vera neitt áhrifavald að baki hinu illa — nema frá mönnunum sjálfum komið. Mennirnir einir geta haft illar kenndir — gremju, illgirni, hatur og hefnigirni — eða góðar kenndir — kærleika og góðvild. Þeirra sjálfra er að móta eitthvað ljótt eða eitthvað fagurt úr mótunarleir lífs síns.

Bæn dagsins

Ég bið að mér takist að móta eitthvað gott úr lífi mínu. Ég bið að ég verði góður handverksmaður þess efniviðar, sem mér hefur verið fenginn.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.