Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Standi ég ekki við mitt kemur það niður á AA-samtökunum. Gangi mér vel þá gengur samtökunum vel. Hvert skipti sem mér mistekst, hrakar þeim tilsvarandi. Hvert skipti sem mér tekst vel til, eflist AA sem því nemur. Ég ætla ekki að bíða þess að vera kvaddur til þjónustu, ég ætla að gefa mig fram. Ég ætla að líta hvert tækifæri til að vinna fyrir AA sem áskorun, og ég ætla að gera mitt besta til að verða við hverri áskorun og vinna verk mín eins vel og ég get. Ætla ég að taka hverri áskorun fegins hendi?
Íhugun dagsins
Menn eru vanmetaskepnur í þess orðs fyllstu merkingu ef þeir reyna að lifa lífinu án stuðnings Drottins. Margir reyna að vera sjálfum sér nógir og sækjast eftir nautnum af eigingirni og finna að þetta gefur ekki sérlega góða raun. Hversu miklum jarðneskum auði sem þeir safna, hversu frægir og voldugir sem þeir verða, kemur venjulega að því að vonbrigði og tilgangsleysi taka við. Dauðinn bíður og þeir geta ekki tekið neinn jarðneskan auð með sér yfir um. Hvað stoðar það mig að vinna allan heiminn ef ég glata sálu minni.
Bæn dagsins
Ég bið að ég komi ekki tómhentur til endaloka lífs míns. Ég bið að ég lifi þannig að ég verði ekki hræddur við að deyja.