Codzienne rozważanie · 349. dzień roku

15 grudnia

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Umhyggja fyrir öðrum bætir veröldina. Siðmenningin myndi líða undir lok ef við einblíndum alltaf öll aðeins á eigin hag. Við alkóhólistar höfum stórfenglegt tækifæri til að leggja okkar að mörkum til velfarnaðar umheimsins. Við eigum sameiginlegt vandamál. Við finnum sameiginlega lausn. Við erum sérlega hæf til að hjálpa fólki sem glímir við sama vandamál. Mikið yrði heimurinn indæll ef allir tækju fyrir sinn stærsta vanda, fyndu á honum lausn og eyddu frístundum sínum það sem þeir ættu ólifað við að hjálpa öðrum sem ættu við sama vandamál að glíma. Heimurinn yrði brátt eins og hann ætti að vera. Met ég að verðleikum einstætt tækifæri mitt til að vera til þjónustu?

Íhugun dagsins

Unnt er að lifa í dag í meðvitundinni um eininguna við Guð, sem er styrkur þinn til góðra hugsana, orða og verka. Ef stundum virðist skyggja í tilveru þinni og þér finnst þú ekki vera vel upplagður, skaltu muna að það stafar ekki af því að Guð er ekki með þér, heldur af því að þú ert tregur á að skynja nærveru hans þá stundina. Þöglu gráu dagarnir eru dagar skylduverkanna, en vita skaltu að meðvitundin um nálægð Guðs mun koma á ný og vera með þér, þegar gráu dagarnir eru liðnir.

Bæn dagsins

Ég bið að ég hafi kjark til að taka leiðum dögum. Ég bið að ég hafi trú á því að upp birti á ný.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.