Codzienne rozważanie · 358. dzień roku

24 grudnia

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Við höfum öðlast nýtt líf, bara af því að svo vildi til að við urðum alkóhólistar. Við verðskuldum sannarlega ekki þetta nýja líf. Það er fátt eitt í fortíð okkar sem réttlætir líf okkar nú. Margir lifa góðu lífi allt frá barnæsku, komast aldrei í alvarleg vandræði, aðlagast lífinu vel, samt hafa þeir ekki öðlast allt það sem við ofdrykkjumenn höfum náð. Við vorum svo heppin að finna AA-samtökin og þar með nýtt líf. Við erum meðal hinna örfáu heppnu í heiminum, sem hafa lært nýjan lífsmáta. Er ég innilega þakklátur fyrir það nýja líf, sem ég hef lært að lifa í AA?

Íhugun dagsins

Við erum snortin djúpu þakklæti til æðri máttar fyrir alla þá óverðskulduðu blessun, sem við höfum orðið aðnjótandi. Við þökkum Guði af öllu hjarta. Þakklætið fyrir það, sem okkur féll í skaut, kemur fram í löngun til að þjóna öðrum. Það hefur í för með sér að við fórnum einhverju af okkur sjálfum og okkar hag. En við gerum það með ánægju. Þakklæti, þjónusta og fórnfýsi eru skref, sem liggja til góðra AA-starfa. Þau ljúka upp hurðum okkar nýja lífs.

Bæn dagsins

Ég bið að ég þjóni öðrum af djúpu þakklæti fyrir það, sem ég hefi öðlast. Ég bið að mér renni blóðið til skyldunnar.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.