Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Er ég hættur að bíða ósigra hið innra, heyja stríð við sjálfan mig? Hef ég gefið sjálfan mig á vald AA-samtökunum og mér æðri máttar? Er ég hættur að vera andlega niðurbrotinn? Er ég ennþá ruglaður andlega, eða er ég kominn á „rétt strik“? Ég get tekist á við hvað sem er, ef ég er viss um að ég sé á réttri leið. Þegar það er komið á hreint ætla ég að helga AA-samtökunum líf mitt. Ég hef séð, hvaða árangur AA-stefnan ber. Ætla ég nú að fara eftir henni af öllum kröftum, af öllu sem ég á til, öllu afli, með öllu mínu lífi? Ætla ég að hafa meginhugmyndir AA-samtakanna að leiðarljósi það sem ég á eftir ólifað?
Íhugun dagsins
Láttu hendi Guðs leiða þig meðan á þessari kyrrlátu hugleiðingu stendur. Láttu þýða rödd samvisku þinnar leiðbeina þér við allar ákvarðanatökur í dag. Staldraðu við eða haltu áfram eftir þessum vísbendingum. Skoðaðu viðburði dagsins í dag, sem hluta af Guðs ætlun og vilja. Hann kann að vísa þér á réttar ákvarðanir. Bíddu hægur þangað til þú færð innri löngun, vísbendingu, hugboð um að eitthvað sé rétt; áhrif heilags anda á vilja þinn.
Bæn dagsins
Ég bið að ég reyni í dag að láta hug minn og hjarta hlíta handleiðslu Guðs. Ég bið að ég reyni í dag að fylgja samvisku minni og gera það, sem mér finnst vera rétt.